Valmynd

Nýjung í Stoð - BIOMECANICS barnaskór fyrir þau yngstu

07 Jún 2021
eftir Stoð .

  

Að velja réttu skóna á börnin fylgir mikil ábyrgð!

Frá hreyfifræðilegu sjónarmiði er mikilvægt að fyrstu skórnir líki sem mest eftir eðlilegri hreyfingu fóta en gefi jafnframt öryggi og stöðugleika.

Skórnir þurfa því að vera sveigjanlegir og sólinn ekki of þykkur en jafnframt að hafa góðan hliðlægan stuðning til að auka stöðugleika án þess að hindra náttúrulega/eðlilega hreyfingu fótarins.

 

 

BIOMECANICS skórnir eru hannaðir í samstarfi við sérfræðinga frá Institut of Biomecanics Valencia,. Meginmarkmið þeirra er að hanna hágæða skó sem eru stöðugir og styðja við náttúrulega þróun fótarins á sama tíma.

Allir saumar eru flatir svo ekki myndist núningur og áhersla er lögð á að enginn þrýstingur sé á hásinar barnsins. Skórnir eru með góða rakastjórn og anda vel.

BIOMECANICS skórnir eru gerðir úr 100% leðri sem er án króms og annarra eiturefna.

 

Barnið finnur fyrir öryggi og stöðugleika í BIOMECANICS skónum frá Garvalin.

 

 

Mér leið einkennilega og hjartslátturinn var hraður og óreglulegur.

07 Jún 2021
eftir Stoð .
„Loftur sá til þess að ég svæfi eins og ungabarn“, segir Ragnar Hilmarsson eftir að hann var greindur með kæfisvefn

Stór hluti þeirra sem greinast með kæfisvefn er fólk á besta aldri, í fullri vinnu og fólk sem ferðast og stundar áhugamál sín af kappi. Ragnar Hilmarsson er einn þeirra og deilir hann hér með okkur þeim kaflaskiptum sem urðu í lífi hans eftir að hann vaknaði einn morguninn með óreglulegan hjartaslátt og var greindur með kæfisvefn í kjölfarið.

Glötuð niðurstaða fyrir 45 ára gamlan mann

Ég var greindur fyrst með kæfisvefn árið 2013 en þá hafði það mikil áhrif á konuna mína vegna þess að hún átti erfitt með svefn vegna hávaða í mér á nóttunni. Um það leyti fór ég í svefnrannsókn hjá Landspítalanum og greindist með vægan kæfisvefn. Mér stóð til boða að fá kæfisvefnsvél, sem ég lét þó aldrei verða af. Þetta háði mér ekki mikið á þessum tíma, en 10 árum seinna var þetta farið að hafa meiri áhrif á mig. Ég vaknaði alltaf þreyttur og þurfti mjög oft að leggja mig eftir vinnu. Þó að ég svæfi í 8 tíma eða lengur þá var ég aldrei úthvíldur.

Í september 2020 urðu svo kaflaskil í þessu hjá mér. Þá vaknaði ég einn venjulegan sunnudagsmorgun þreyttur eins og svo oft áður en eitthvað var öðruvísi en vanalega. Mér leið einkennilega og hjartslátturinn var hraður og óreglulegur. Ég fór á bráðamóttökuna til að láta kanna þetta betur og þá kom í ljós að hjartað hafði farið úr takt (gáttatif), sem endaði með að ég var svæfður og rafvendur.

Eftir þetta fór ég í skoðun hjá Gísla Jónssyni vini mínum sem er hjartalæknir og hann komst að þeirri niðurstöðu að þetta hefði gerst í svefni og sendi mig rakleitt í svefnrannsókn. Niðurstaðan kom mér ekki á óvart. Staðan hafði versnað og var ég greindur með kæfisvefn yfir meðallagi eða 30 öndunarhlé á klukkustund.

Í samtali við lækninn minn um hvað væri til ráða kom fram að hann taldi að lítið annað væri að gera en að ég myndi fá svefnvél. Mér fannst þetta nú heldur glötuð niðurstaða fyrir 45 ára gamlan mann sem telst í þokkalegu góðu líkamlegu formi og stundar útivist eins og hjólreiðar, fjallaskíði, gönguferðir, hlaup o.fl. Ég tók mér nokkra klukkutíma í að finnast þetta glatað, en ákvað svo að gera það besta úr stöðunni.

Ég fékk vél frá Landspítalanum nokkrum vikum seinna og ákvað ég að gefa vélinni minni nú bara eitthvað nafn og ber hún nafnið Loftur. Það varð alger bylting fyrstu daga okkar Lofts, hann sá til þess að ég svæfi eins og ungabarn og á nokkrum vikum áttaði ég mig á því að ég hafði ekki fengið almennilega hvíld í mörg ár.

Á þessum 6 mánuðum sem liðnir eru frá því að ég fékk vélina hef ég ekki fundið fyrir þörf að leggja mig seinnipartinn og vakna úthvíldur alla morgna. En þar sem ég ferðast mikið vegna áhugamála og vélin frá Landspítalanum er frekar stór um sig þá fór ég að skoða hvað væri í boði og fann út að Stoð er að selja ferðasvefnvél. Vélin er ekki mikið stærri en farsími og einstaklega meðfærileg. Þetta mun koma sér mjög vel fyrir mig fyrir sumarið þar sem ég eyði flestum helgum og fríum í að gista í tjaldi, fjallaskálum og við alls konar aðstæður. Ferðavélin mun fá sitt pláss alveg eins og annar búnaður sem ég nota til útivistar, því að án hennar mun ég ekki geta verið hér eftir.

Munurinn fellst í stærðinni

AirMini ferðavélin er lítil og meðfærileg kæfisvefnsvél fyrir þá sem eru á ferðinni. Vélin veitir sömu meðferð og vélin á náttborðinu. Þó að vélin sé lítil er hún mjög öflug og veitir sambærilega meðferð og kæfisvefnsvél sem fólk notar heima. Munurinn felst í stærðinni og því að ekki fylgir með rakabox sem fylla þarf af vatni. Ferðavélin veitir því vatnslausa rakameðferð með sérhæfðum rakafilter.

Einkenni kæfisvefns

Ása, framkvæmdastjóri Stoðar er hjúkrunarfræðingur með mastersgráðu í svefnrannsóknum. Hún segir einkenni kæfisvefns koma misjafnlega fram hjá fólki.

„Kæfisvefn er samheiti yfir einkenni sem lýsa sér þannig að einstaklingar fá endurtekin öndunarstopp að næturlagi og oftast fylgikvilla að degi til, í formi syfju og þreytu. Sumir þola mjög illa röskun á svefni vegna öndunartruflana og lýsa fyrst og fremst svefnleysi, á meðan aðrir eru mjög syfjaðir á daginn. Þriðji hópurinn kemur oft seint í greiningu, en glímir við afleiðingar kæfisvefns á hjarta- og æðakerfið, svo sem háþrýsting, hjartasjúkdóma, gáttaflökt, vélindabakflæði og fleira. Það er mjög gefandi að upplifa þegar fólk, sem verið hefur með skert svefngæði vegna kæfisvefns, fær meðferð við hæfi. Það hreinlega öðlast nýtt líf og lýsir því að vera loks úthvílt og orkumikið fyrir daginn, eins og Ragnar lýsir svo skýrt í sögu sinni“ ,“ útskýrir Ása.

Frelsi með í ferðalagið

Björk Gunnarsdóttir er með BSc.-gráðu í heilbrigðisverkfræði og er kæfisvefnssérfræðingur hjá Stoð. Hún segir stórkostlegt að vera loksins komin með lausn fyrir þá sem þjást af kæfisvefni og vilja litla og handhæga svefnöndunarvél til að ferðast með.

„Þeir sem ferðast mikið vegna vinnu sinnar eða sér til skemmtunar hafa verið að kaupa sér vélina. Ég hef lært að þeir sem eru með kæfisvefn og nota kæfisvefnsvél, taka ekki í mál að sofa eina nótt án vélar. Þeir finna strax mun á sér og eru ómögulegir og úrvinda ef þeir sleppa vélinni. Því felst mikið frelsi í því að þurfa ekki að taka með stærri vélina og rakatækið sem er á náttborðinu heldur geta kippt litlu ferðavélinni með í ferðatöskuna.“ Segir Björk.

AirMini ferðavélin er mjög einföld í notkun. Vélinni fylgir snjallforrit (app) sem hægt er að sækja í AppStore eða Playstore og gott að vera búið að ná í forritið áður en komið er í tíma til Bjarkar. Einnig þarf fólk að muna að koma með vélina sína og grímu í tímann, svo Björk getir stillt ferðavélina á sömu stillingar og verið er að nota heima.


Allar nánari upplýsingar og til að bóka þjónustutíma í ráðgjöf er að finna á vefsíðu Stoðar, stod.is

Bryndís nýr deildarstjóri sölu- og þjónustudeildar

09 Feb 2021
eftir Stoð .

Bryndís Ragna Hákonardóttir er nýr deildarstjóri sölu- og þjónustudeildar

Hún hóf formlega störf í janúar síðastliðinn
Bryndís er viðskiptafræðingur og næringarþerapisti að mennt og er frábær viðbót við gott teymi nýrrar deildar í Stoð

Sölu- og þjónustudeild Stoðar er til húsa í Bíldshöfða 9 og Trönuhrauni Hafnarfirði.

Göngugreiningar fara að mestu fram á Höfða. Á báðum stöðum er boðið upp á íþróttaskó, CEP compression sokka,  tilbúnar hlifar og spelkur og einföld æfingartæki þó úrvalið af þessum vörum sé heldur meira í verslun Stoðar Bíldshöfða.

Í Hafnarfirði er auk þess gott úrval af ýmsum smávörum sem létta fólkið lífið, bað og salernishjálpartækjum og flutningshjálpartækjum. Þar seljum við einnig MEDI þrýstingssokka í tilbúnum stærðum en einnig er hægt að fá þrýstingsfatnað sérsaumaðan eftir máli

 

Við bjóðum Bryndísi velkomna og hlökkum til samstarfsins :)

30 ára starfsafmæli

22 Jan 2021
eftir Stoð .

Tveir starfsmenn fagna 30 ára starfsafmæli hjá Stoð

Guðmundur R. Magnússon stoðtækjafræðingur, starfsmaður í stoðtækjadeild og Kristina Andersson stoðtækjasmiður starfsmaður hjálpartækjadeildar fagna um þessar mundir 30 ára starfsafmæli hjá Stoð.

Samstarfsfélagar komu saman og heiðruðu þessa góðu og traustu starfsmenn sem hafa fylgt fyrirtækinu í svo langan tíma og  gera enn. Þau eru miklir fagmenn, traust og er þekking þeirra og reynsla dýrmæt fyrirtækinu og viðskipavinum okkar.

Að sögn hefur þeim báðum liðið vel hjá Stoð, hafa komið að vexti og velgengi fyrirtækisins og eru sem betur fer enn full starfsorku.

Það er gaman að segja frá því að hjá fyrirtækinu eru tveir aðrir starfsmenn Stoðar með hærri starfsaldur.  Það eru þeir Sveinn Finnbogason stoðtækjafræðingur sem er einn af stofnendum fyrirtækisins frá 1982 og Ólafur H. Guðmundsson stoðtækjasmiður sem hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1985. Það má því með sanni segja að Stoð búi yfir dýrmætri reynslu og þekkingu sem er einstök á Íslandi.

Við þökkum þeim öllum gott samstarf, ómetanlegt að hafa svona reynslumikla starfsmenn innaborðs

Til hamingju :)

 

Nýr starfsmaður í framleiðsludeild Stoðar

20 Jan 2021
eftir Stoð .

Bjóðum Davíð velkominn til starfa

Hann er skósmiður að mennt með hátt í 20 ára starfsreynslu

Davíð hóf störf hjá framleiðsludeild Stoðar í nóvember síðastliðnum og hann sér um innleggin bæði sérsmíðuð og aðlöguð ásamt hverslags breytingum sem þarf að gera á skóm.

 

Frábær viðbót í okkar góða hóp :)