Vöruflokkar
Gervilimir
Gervilimir eru alltaf sérsmíðaðir
Lausnir miðast við getu og ástand viðkomandi
Starfsfólk Stoðar legggur metnað í að þjónusta viðskiptavini á sem bestan hátt og eru með áralanga faglega reynslu.
Við bjóðum sérhannaðar lausnir sem henta öllum.
- Gervifætur eru allt frá einföldum útlitsfótum upp í öfluga kraftfætur sem hægt er að hlaupa á.
- Gervihendur eru einnig mismunandi, allt frá óhreyfanlegum útlitshöndum upp í flóknar rafmagnshendur.
Stoð er með samning við Sjúkartryggingar Íslands og er sótt um styrk til þeirra.
Í langflestum tilfellum greiða Sjúkratryggingar fyrir gervilimi.
Jafnframt þjónustum við fólk sem misst hefur fingur, nef eða eyru og eru þá gerðar nákvæmar eftirlíkingar úr siliconi.