Stjórn og stjórnarhættir
STOÐ er í 100% eigu Veritas samstæðunnar.
Veritas samstæðan sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og eru þau hvert um sig í fararbroddi á sínu sviði. Dótturfélög í samstæðu Veritas eru auk STOÐAR; Artasan, Distica og Vistor. Móðurfélagið, Veritas, veitir dótturfélögunum stoðþjónustu, við umsýslu fjármála, upplýsingatækni, mannauðsstjórnun o.fl. svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Stjórnkerfi upplýsingaöryggis Veritas er vottað skv. ISO 27001 af British Standards Institution (BSI) í London. Veritas leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, metnað og ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi.
Stjórn STOÐAR er skipuð fjórum aðilum sem skipaðir eru af móðurfélaginu. Stjórnin kemur reglulega saman til að ræða stöðu og stefnu félagsins. Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar og er ábyrgur gagnvart henni.
Jón Björnsson
Stjórnarformaður
Jón tók við sem forstjóri Veritas í ágúst 2024. Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum. Jón situr m.a. í stjórnum Boozt.com, Origo Lausna og Dropp. Jón hefur jafnframt setið í stjórn Artasan, eins af fyrirtækjum Veritas, frá 2023.
Arna Harðardóttir
Stjórnarmaður
Arna Harðardóttir er framkvæmdarstjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Helix Health. Arna sinnti áður starfi forstöðumanns sölu og markaðsmála á heilbrigðislausnasviði Origo og þar á undan starfaði hún sem viðskiptastjóri hjá MEDOR. Arna situr m.a. í stjórn fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni innan samtaka Iðnaðarins. Arna er með MBM gráðu í viðskiptum og BSc í Heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Ari Kristján Sæmundsen
Stjórnarmaður
Ari útskrifaðist með B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1974. Hann var stundakennari við HÍ og Hjúkrunarskóla Íslands og afleysingakennari við Menntaskólann í Reykjavík samhliða því að ljúka við 4. árs rannsóknarverkefni hjá Rannsóknarstofu HÍ í veirufræði. Útskrifaðist með M.Sc. gráðu í örverufræði frá Virginia Tech í Bandaríkjunum 1978 og Ph.D. í veirufræði frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi 1982. Ari var einn af stofnendum Gróco ehf 1983 og framkvæmdastjóri þess frá 1985. Vann loks sem viðskiptastjóri hjá MEDOR ehf. 2012-2018, en er nú sestur í helgan stein.
Ari var um skeið í stjórn Verkfræðingafélags Íslands, Krabbameinsfélags Reykjavíkur og líftæknifyrirtækisins CanAg Diagnostic AB í Gautaborg. Hann var í starfshópi Rannsóknarráðs ríkisins um líftækni 1983 og nefndarformaður nefndar um möguleika íslenskrar líftækni á vegum iðnaðarráðuneytisins 1984.
Ingibjörg Eyþórsdóttir
Stjórnarmaður
Ingibjörg er hjúkrunarfræðingur að mennt með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Hún er framkvæmdastjóri heilbrigðis- og rekstrarsviðs hjá Sóltúni Heilbrigðisþjónustu og framkvæmdastjóri hjúkrunar. Þar á undan var hún framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Sóltúni öldrunarþjónustu. Áður en Ingibjörg gekk til liðs við Sóltúns félögin var hún meðal annars hjá sprotafyrirtækinu Kara connect þar sem unnið er að hönnun hugbúnaðar í fjarskiptatækni. Hún var rekstrarstjóri Klíníkurinnar Ármúla þar sem hún kom meðal annars að allri uppbyggingu og þróun og var deildarstjóri sem og sölu- og markaðsstjóri Johnson & Johnson hjá Icepharma. Ingibjörg hefur víðtæka reynslu og þekkingu innan heilbrigðisgeirans bæði hvað varðar rekstur og uppbyggingu og hefur komið að mörgum þróunar- og uppbyggingarverkefnum í þessum geira.
Þorvaldur Ingvarsson
Stjórnarmaður
Þorvaldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands árið 1987 og með doktorsgráðu í bæklunarskurðlækningum frá Háskólanum í Lundi árið 2000. Þorvaldur er bæklunarskurðlæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri og dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Össurar. Hann hefur einnig verið forstjóri og lækningaforstjóri Sjúkrahúss Akureyrar. Þorvaldur hefur víðtæka reynslu af störfum innan heilbrigðisgeirans og hefur starfað í mörgum nefndum á vegum hins opinbera.