Fara á efnissvæði
Brjóstahaldari

Gervibrjóst og fatnaður

STOÐ býður upp á fjölbreytt úrval af gervibrjóstum sem miða að því að endurheimta náttúrulega líkamslögun og auka þannig sjálfstraust og vellíðan kvenna.

Hjá STOÐ er hægt að fá mælingu og mátun á gervibrjóstum og fleygum og ráðgjöf við val á fatnaði svo sem brjóstahöldurum, sundfatnaði eða toppum.  Áhersla er lögð á vandaða ráðgjöf og persónulega þjónustu.

Bóka tíma í ráðgjöf og mælingu

Gervibrjóst

STOÐ selur gervibrjóst og fleyga frá Amoena. Amoena leggur áherslu á gæði og nýsköpun í þróun gervibrjósta sinna, með það að markmiði að mæta þörfum kvenna og stuðla að vellíðan þeirra. Brjóstin fást í mismunandi stærðum og gerðum

Einnig er til eftirfarandi gegn sérpöntun:

  • Álímd brjóst
  • Brjóst með pumpu
  • Sundbrjóst
  • Fleygar til að nota eftir fleygskurð

Brjóstahaldarar

STOÐ er með gott úrval brjóstahaldara frá breska vörumerkinu Nicola Jane. Nicola Jane hefur í yfir 40 ár verið í fararbroddi í þróun og framleiðslu á sérhönnuðum brjóstahöldurum fyrir konur sem hafa farið í brjóstnám eða aðrar brjóstaaðgerðir.

Brjóstahaldararnir eru hannaðir með sérstaka vasa fyrir gervibrjóst sem veita örugga og þægilega festingu, auk þess að stuðla að góðri lögun og þægindum í daglegu lífi. Mikil áhersla er lögð á gæði, snið og þægindi, þannig að konur geti fundið lausn sem hentar þeirra þörfum og lífsstíl.

Hjá STOÐ stendur þér til boða fagleg aðstoð og ráðgjöf við val og mátun gervibrjósta og fatnaðar

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu