Rea Azalea Tall 39cm
Vörunúmer: 1539534
Í samningi við:
Rea Azalea Tall er sami stóll og Rea Azalea hægindahjólastóllinn. Hægindahjólastóll með mikla stillimöguleika til að mæta þörfum hvers og eins. Stóllinn er með tilt-in-space eiginleika ásamt því að vera með Flex 3 bak sem hægt er að stila bæði í hæð og breidd. Stillanleg setdýpt og setbreidd. Á stólnum er plush áklæði, höfuðstuðningur og bremsur fyrir aðstoðarmann. Tall stóllinn hefur aukna sethæð, setdýpt, bakhæð og kemur með harðri bakplötu. Úrval aukahluta er í boði, líkt og höfuðpúðar.
Setbreidd: 39+5 cm
Setdýpt: 48-55 cm
Eiginþyngd: 34 kg, með dekkjum, hliðarhlífum og fóthvílu/hvílum
Litur: Dökkgrár
Hámarksþyngd notanda: 135 kg
Stillanlegur sætishalli fram/aftur: -1°-+20°