Kenevo
Vörunúmer: 0624333C60
Í samningi við:
Kenevo frá Ottobock er tölvustýrður gervihnjáliður sem leggur áherslu á öryggi og stöðugleika í daglegu lífi. Hnjáliðurinn bregst við hreyfingum notandans og veitir stuðning við fjölbreyttar aðstæður, svo sem þegar gengið er á ójöfnu undirlagi, niður halla eða stiga og afturábak.
Kenevo veitir einnig stuðning þegar sest er niður og staðið upp og hentar því sérstaklega vel þeim sem nota staf, göngugrind eða önnur gönguhjálpartæki. Innbyggð hrasvörn bregst við ef notandinn hrasar og hjálpar þannig til við að auka öryggi við göngu.
Hnjáliðurinn er sérstaklega ætlaður einstaklingum með litla til miðlungs hreyfigetu og hægt er að aðlaga virkni hans að getu og þörfum hvers og eins