Fara á efnissvæði

Anatomic Sitt Anatomic Motion Seat

Vörunúmer: 171411

Sérpöntun

Error
Error
Error
Vinsamlegast þreyttu þrautina

Anatomic Motion sætið er nýlegt setkerfi fyrir bæði börn og fullorðna sem fylgir hreyfingum líkamans.
Anatomic Motion setkerfið er sérstaklega hannað fyrir einstaklinga með réttivöðvakrampa (extension spasticity) og mikil setvandamál. Notandinn heldur góðri líkamsstöðu og fær þannig mjúka og náttúrulega hreyfingu í mjaðma-, bak- og hnéliðum, um leið og komið er í veg fyrir núnings- og togkrafta á húð.
Möguleikinn á mjaðma- og hnéréttu dregur úr þrýstingi á setbein og minnkar hættuna á þrýstingssárum. Mótstaða við réttu og beygju í bæði mjaðma- og hnéliðum er aðlöguð að hverjum einstaklingi með gasfjöður.

Hægt er að fá sætið í bæði Pro og Advanced útgáfu. Pro útgáfan er með heilli setplötu og fótafjöl en Advanced útgáfan er með tvískiptri setplötu og fótplötum, sem gerir kleift að stilla setdýpt í mismunandi dýpt hægra og vinstra megin og setja mjaðmir í fráfærslu (abduction).

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu