Via Go hjálparmótor fyrir aðstoðarmenn
Sérpöntun
Via Go er aflbúnaður fyrir aðstoðarmann á hjólastól. Hann er þægilegur og auðveldur í notkun. Ergonomísk hönnun á stýringunni gerir auðvelt fyrir hvern sem er að nota búnaðinn. Auðvelt er að festa hann á og taka hann af. Búnaðurinn er léttur og það auðveldar fólki að ferðast með hann. Engin handföng fylgja og því hefur búnaðurinn engin áhrif á bakhalla eða tilt í stólnum.
Rafhlaða:
- Endist allt að 16 km.
- Það tekur u.þ.b. 5 klukkutíma að hlaða tækið til fulls.
Fjarstýring:
- Auðveld í notkun.
- Hraðastilling frá 1,5 km/klst til 5,5 km/klst.
- Ljós sem sýna hleðslu.
Keyrslueiningin:
- Keyrslueiningin er einungis 5,5 kg.
- Auðvelt er að brjóta stóla saman með keyrslueininguna á.
- Auðvelt að taka hana af og setja aftur á.
Þegar farið er með hjólastól með Via Go búnaði í flug þarf notandi að hafa útprentað flughæfniskírteini meðferðis.
Gagnlegar upplýsingar fyrir flug