E-Motion DuoDrive
Sérpöntun
Í samningi við:
DuoDrive er hjálparmótor á hjólastól sem hentar á flestar gerðir hjólastóla.
Hjálparmótorinn auðveldar einstaklingum með skertan mátt í höndum og líkama að komast um.
Hagnýtar upplýsingar:
- Mótor og rafhlaða er í báðum hjólum.
- Nemar á drifhringjum keyra mótorana af stað þegar stólinn er keyrður áfram.
- Hægt að stilla næmni nemanna í hvoru hjóli fyrir sig og það kemur sér vel fyrir einstaklinga sem eru með minni kraft í annarri hendi. Einnig er hægt að keyra hjólastólinn með hraðastilli (e. Cruise Control) stillingu á fjarstýringu.
- DuoDrive drifhjólin eru einfaldlega sett í stað þeirra hjóla sem fyrir voru á hjólastólnum.
- Drifhjólin koma í þremur stærðum: 22", 24" og 25".
- Hámarksþyngd notanda: 150 kg.
- Hámarksburðargeta: 190 kg.
- Hvort hjól vegur 7,8 kg og heildarþyngd þeirra er því 15,6 kg.
- Búnaðurinn eykur heildarbreidd stóls um 2-4 cm.
Fjarstýring:
- Notuð til að slökkva og kveikja á drifhjólum og festist á ramma stólsins.
- Auðvelt fyrir einstaklinga með skertan kraft í höndum að stjórna.
- Hægt að velja um tvö einstaklingssniðin prógrömm fyrir innandyra- og utandyranotkun.
- Er hlaðin með USB-C kapli.
Með fjarstýringunni er einnig hægt að virkja svokallað Cruise Control í drifhjólum, þar sem hægt er að stilla hraðann á drifhjólum og því óþarfi að ýta með handafli. Cruise Control er frábært þegar farið er upp og niður brekkur því þá þarf notandi ekki að hafa áhyggjur af því að halda við stólinn á leiðinni niður og rennur ekki til baka þegar farið er upp brekku.
Hleðslutæki:
- Tengist með segli í hleðslutengi á DuoDrive drifhjólunum.
- Hleður bæði hjól samtímis.
- Sjálfvirk aðlögun fyrir 10-240 V.
- Hleðslustaða sýnileg á LED ljósum á DuoDrive drifhjólum.
- Hleðslutími er um 6 klukkustundir.
Þegar farið er með hjólastól með DuoDrive búnaði í flug þarf notandi að hafa útprentað flughæfniskírteini meðferðis.