E-Pilot handhjól rafknúið
Veldu stærð
Sérpöntun
E-Pilot er rafknúið handhjól á hjólastóla sem breytir hjólastólnum yfir í hjól á nokkrum sekúndum. Er með sportlega hönnun og hentar frábærlega til daglegra nota.
Handhjólið hentar á flestar gerðir hjólastóla. Það festist á sætisrör hjólastólsins og getur staðið eitt og sér þegar það er ekki í notkun. Standurinn er með stórum hjólum og með snúningseiginleika til að komast vel yfir hindranir.
Er með USB tengi til að hlaða farsíma og skjá sem sýnir gagnlegar upplýsingar, meðal annars um notkun rafhlöðu og hraða.
Hagnýtar upplýsingar:
- Rafhlaða leyfir allt að 50 km vegalengd - veður, umhverfi og þyngd notanda hafa áhrif.
- Heildarþyngd e-pilot: 18,4 kg
- Hámarksþyngd notanda: 100 kg
- Hámarksburðargeta: 135 kg (e-pilot, hjólastóll og notandi)
- Rafhlöðupakkning: Auðveld í ásetningu og hægt að hlaða hvort sem hún er á hjóli eða ekki. Vegur 2,9 kg og hægt að fá auka rafhlöðu til að nota í lengri ferðum
- Hleðslutæki: Hleðsla á tómri rafhlöðu tekur um 4 klst.
Þegar farið er með hjólastól með E-Pilot búnaði í flug þarf notandi að hafa útprentað flughæfniskírteini meðferðis.