Hepro Tilto E2 10 EHR með rafknúinni sætislyftu
Sérpöntun
Til á lager - hafið samband til að fá verð.
Hepro Tilto E2 10 EHR er vandaður vinnustóll með rafknúinni sætislyftu. Bökin á Tilto stólunum koma í tveimur mismunandi hæðum og bakið á EHR stólunum er hærra bakið, 62 cm. Lægra bakið má finna á Tilto HR stólunum. Hægt er að fá höfuðpúða á stólinn. Það er einfalt að stilla sætishallann á stólnum og hægt er að velja um að hafa hann opinn (fylgir hreyfingum líkamans og léttir þannig á þrýstingspunktum með því að tryggja fjölbreyttari setstöðu) eða lokaðan. Stóllinn nýtist við vinnu og einnig heima. Uppfellanlegur fóthringur með gott pláss fyrir fætur.
Hagnýtar upplýsingar:
Setbreidd: 49 cm
Setdýpt: 52 cm
Sethæð: 52-62 cm
Sætishalli: -6° - +10°
Breidd bakpúða: 44 cm
Hæð bakpúða: 62 cm
Lengd arma: 35 cm
Breidd milli arma: 36-52 cm
Mesta breidd stóls: 68 cm
Burðargeta: 150 kg