Krabat Jockey
Sérpöntun
Krabat Jockey er vinnustóll með söðulsæti og er ætlaður börnum á aldrinum 0 til 14 ára. Hann hentar börnum með fjölbreyttar greiningar og kemur í þremur stærðum. Það er hægt að fá hann með bæði gaspumpu og rafmagnshækkun. Hönnunin á söðulsætinu gefur barninu uppréttari stöðu sem hentar vel fyrir leikskóla og skóla.
Lífeðlisfræðilegur ávinningur þess að nota söðulsæti:
Með því að opna mjaðmir og hafa þær í meira en 90° er mjaðmagrind í hlutlausri stöðu og það gerir notandanum kleift að viðhalda náttúrulegri S-sveigju hryggjarins til lengri tíma og þar með virkri og uppréttri stöðu. Allir stærstu liðir í neðri útlimum eru í miðstöðu, sem stuðlar að eðlilegri vöðvaspennu og vöðvalengd. Mjaðmaliðurinn er í hvíldarstöðu þar sem mjaðmarkúlan er staðsett inni í liðskálinni. Það að sitja á söðulsæti getur hjálpað til við að fyrirbyggja fylgikvilla eins og vöðvakreppur, mjaðmaverki og liðhlaup.
Undirstellið á stólnum er svart en hægt er að fá áklæðið í rauðum, svörtum eða sandlituðum.