Fara á efnissvæði

Krabat Jockey Plus

Vörunúmer: 900-1236

Sérpöntun

Error
Error
Error
Vinsamlegast þreyttu þrautina

Krabat Jockey Plus er vinnustóll með söðulsæti og er ætlaður börnum á aldrinum 2-14 ára. Hann býður upp á meiri stuðning og þægindi en hinir Jockey stólarnir. Plus bakið á honum styður við efri líkama með stillanlegum hliðarstuðningum, höfuðstuðningi og möguleika á mismunandi bolbeltum. Stóllinn hentar börnum með fjölbreyttar greiningar og kemur í tveimur stærðum. Hönnunin á söðulsætinu gefur barninu uppréttari stöðu sem hentar vel fyrir leikskóla og skóla.

Lífeðlisfræðilegur ávinningur þess að nota söðulsæti:
Með því að opna mjaðmir og hafa þær í meira en 90° er mjaðmagrind í hlutlausri stöðu og það gerir notandanum kleift að viðhalda náttúrulegri S-sveigju hryggjarins til lengri tíma og þar með virkri og uppréttri stöðu. Allir stærstu liðir í neðri útlimum eru í miðstöðu, sem stuðlar að eðlilegri vöðvaspennu og vöðvalengd. Mjaðmaliðurinn er í hvíldarstöðu þar sem mjaðmarkúlan er staðsett inni í liðskálinni. Það að sitja á söðulsæti getur hjálpað til við að fyrirbyggja fylgikvilla eins og vöðvakreppur, mjaðmaverki og liðhlaup. 

Undirstellið á stólnum er svart en hægt er að fá áklæðið í rauðum, svörtum eða sandlituðum.

 

Tengdar vörur

Everydayactivityseatgrey Vinnustólar fyrir börn Leckey Everyday Activity Seat
Sérpöntun
Skoða vöru
TIMO Vinnustólar fyrir börn Hoggi Timo
Sérpöntun
Skoða vöru
Beme Advanced Hero Vinnustólar fyrir börn Leckey BeMe
Sérpöntun
Skoða vöru
Krabat Jockey Front Vinnustólar fyrir börn Krabat Jockey
Sérpöntun
Skoða vöru
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu