Fara á efnissvæði

Stjórn og stjórnarhættir

STOÐ er í 100% eigu Veritas samstæðunnar.

Veritas samstæðan sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og eru þau hvert um sig í fararbroddi á sínu sviði. Dótturfélög í samstæðu Veritas eru auk STOÐAR; Artasan, Distica og Vistor. Móðurfélagið, Veritas, veitir dótturfélögunum stoðþjónustu, við umsýslu fjármála, upplýsingatækni, mannauðsstjórnun o.fl. svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Stjórnkerfi upplýsingaöryggis Veritas er vottað skv. ISO 27001 af British Standards Institution (BSI) í London. Veritas leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, metnað og ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi. 

Stjórn STOÐAR er skipuð fjórum aðilum sem skipaðir eru af móðurfélaginu. Stjórnin kemur reglulega saman til að ræða stöðu og stefnu félagsins. Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar og er ábyrgur gagnvart henni.

Jonbjornssonmynd

Jón Björnsson

Stjórnarformaður

Jón tók við sem forstjóri Veritas í ágúst 2024. Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum. Jón situr m.a. í stjórnum Boozt.com, Origo Lausna og Dropp. Jón hefur jafnframt setið í stjórn Artasan, eins af fyrirtækjum Veritas, frá 2023.

Arna Harðardóttir

Arna Harðardóttir

Stjórnarmaður

Arna Harðardóttir er framkvæmdarstjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Helix Health. Arna sinnti áður starfi forstöðumanns sölu og markaðsmála á heilbrigðislausnasviði Origo og þar á undan starfaði hún sem viðskiptastjóri hjá MEDOR. Arna situr m.a. í stjórn fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni innan samtaka Iðnaðarins. Arna er með MBM gráðu í viðskiptum og BSc í Heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Sigtryggur Hilmarsson 2023

Sigtryggur Hilmarsson

Stjórnarmaður

Sigtryggur tók við sem framkvæmdastjóri STOÐAR 1. mars 2026 eftir að systurfélögin Stoð og MEDOR sameinuðust.
Sigtryggur starfaði sem framkvæmdastjóri MEDOR frá 2011. Þar á undan starfaði hann hjá Vistor sem framkvæmdastjóri heilbrigðistæknisviðs og stjórnandi í viðskiptaþróun frá 2004. Á árunum 1996 til 2004 starfaði Sigtryggur sem framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Radiometer America í Cleveland, BNA og sem vörustjóri hjá sama fyrirtæki í Kaupmannahöfn.  Sigtryggur er með MBA gráðu frá Erasmus University, Rotterdam School of Management og Cand. Pharm gráðu í Lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Sigtryggur er stjórnarformaður ORF Genetics hf. og situr í stjórn STOÐAR hf.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu