Fara á efnissvæði

Starf hjá Stoð

Hjá Stoð starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga að því sameiginlega markmiði að styðja fólk til þátttöku í samfélaginu og aukinna lífsgæða.

Meðal starfsmanna Stoðar má finna stoðtækjafræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, stoðtækjasmiði, verkfræðinga, sjúkraliða, skósmiði, iðnmenntaða, vélvirkja, heilsunuddara, íþróttafræðinga og kennara.

Fagmennska, samvinna og gleði eru leiðarljós okkar í starfi og við berum ómælda virðingu fyrir því samfélagslega mikilvæga hlutverki sem við sinnum. Vinnustaðurinn okkar er opinn og hreinskiptinn, við leggjum áherslu á frumkvæði og áreiðanleika og styðjum okkar fólk til árangurs í starfi.

 

Störf í boði
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu