Fara á efnissvæði

Sjálfbærni

Stoð leggur áherslu á ábyrgð og sjálfbærni í allri starfsemi sinni.

Í því felst meðal annars að nýta stafræna ferla sem best til að draga úr sóun. Stefnt er að því að á fyrsta fjórðungi ársins 2026 verði allar bifreiðar í rekstri félagsins knúnir eingöngu af vistvænni orku.

Þá leggjum við áherslu á að viðhalda heilbrigði vinnustaðarins með því að styðja við áhugahvöt starfsmanna og stuðla að heilbrigðu jafnvægi og álagi, sem og að styðja við bæði andlega og líkamlega heilsu.

Við erum enn fremur meðvituð um að takmarka flugsamgöngur starfsmanna eftir því sem kostur er og stuðla að því að vöruflutningar á vegum félagsins skilji eftir sem minnst kolefnisspor.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu