Opnunartími
Heimilisfang: Dragháls 14-16, 110 Reykjavík
Verslun: mán-fim 9:00-17:00 og fös 9:00-16:00
Viðgerðarverkstæði hjálpartækja: mán-fös 9:00-16:00
Sími: 565 2885. Síminn er opinn mán-fös frá kl. 9:00-16:00.
Einnig má senda fyrirspurnir á stod@stod.is og við svörum við fyrsta tækifæri.
Gott aðgengi
Gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða og verslunin er á fyrstu hæð. Nóg er af bílastæðum fyrir viðskiptavini og einnig eru nokkur rúmgóð stæði fyrir fatlaða við innganginn. Hægt er að fá lánaðan hjólastól til notkunar á meðan þú ert hjá okkur.
Vöruúrval
Í verslun okkar seljum við tilbúnar hlífar, spelkur og innlegg, skó og inniskó, þrýstisokka (s.s. íþróttasokka, ferðasokka og sjúkrasokka), nærfatnað og sundfatnað með vösum fyrir gervibrjóst, sturtukolla, salernisupphækkanir, ferðakæfisvefnsvél og tilheyrandi aukahluti, sem og ýmis konar smáhjálpartæki. Söluráðgjafar Stoðar veita aðstoð í verslun og við mátun.
Í sama rými er sýningarsalur hjálpartækja. Þér er velkomið að koma skoða úrvalið hjá okkur, en til að fá sérhæfða ráðgjöf er mikilvægt að bóka tíma.
Viðgerðir og breytingar
Ef þú ert að koma með hlut í viðgerð eða breytingu, hvort sem um er að ræða skó, spelkur, hjólastól eða annað hjálpartæki, skaltu koma með hann inn um aðalinngang í verslun og ræða við starfsmann í afgreiðslu sem tekur við hlutnum og kemur honum í viðeigandi farveg.
Þjónusta og tímabókanir
Starfsfólk verslunar tekur líka á móti þeim sem eru að mæta í bókaða tíma.
Hægt er að sækja sér ýmsa þjónustu hjá Stoð, til að mynda göngugreiningu, ráðgjöf sérfræðinga, mælingar vegna þrýstingsfatnaðar og stillingar á kæfisvefnsvélum.
Þegar þú mætir skaltu tilkynna komu þína á móttökuskjá í afgreiðslu eða hjá starfsmanni. Á biðstofu okkar geturðu tyllt þér og fengið þér kaffi, kakó eða vatn.
