Stuðningshandfang fyrir rúm
Í samningi við:
Stuðningshandfang fyrir rúm með geymsluvasa
Fyrir aukið öryggi, þægindi og sjálfstæði við að fara í og úr rúmi.
✔ Auðveldar að setjast upp og standa á fætur – veitir stöðugan stuðning við tilfærslur í rúmi og þegar farið er fram úr rúmi
✔ Stuðlar að auknu sjálfstæði – hentar vel fyrir eldri einstaklinga, við skerta hreyfigetu eða á meðan styrkur og hreyfanleiki eru að ná sér aftur eftir veikindi eða aðgerðir
✔ Með geymsluvasa – heldur síma, fjarstýringu, gleraugum og öðrum nauðsynjum innan seilingar
✔ Eykur öryggi – hjálpar til við að viðhalda jafnvægi og dregur úr hættu á falli við að fara í og úr rúmi
✔ Auðveld uppsetning án verkfæra – undirstaðan fer á milli dýnu og rúmbotns og festist örugglega með meðfylgjandi strappa
✔ Hæðarstillanlegt – auðvelt að stilla eftir þörfum notanda
Hæð: 45,7-60 cm
Breidd: 50 cm
Hámarks burðargeta: 136 kg
Tengdar vörur