Softcloud PRO Loftdýna 88 x 200 cm
Sérpöntun
Í samningi við:
SoftCloud PRO er háþróuð loftdýna sem hjálpar til við að fyrirbyggja og meðhöndla þrýstingssár með því að dreifa þrýstingi reglulega yfir líkamann. Loftfylltir hliðarkantar veita aukinn stöðugleika og auðvelda að fara í og úr rúmi, á meðan sérhæft hælasvæði hjálpar til við að vernda einn viðkvæmasta hluta líkamans fyrir þrýstingi. Dýnan er hönnuð fyrir einstaklinga sem þurfa hámarks stuðning, öryggi og þægindi allan sólarhringinn.
Hvernig virkar loftkerfið?
Lofthólfunum er skipt í þrjár raðir. Á meðan ein röð tæmist halda hinar tvær áfram að styðja við líkamann. Þannig dreifist þrýstingurinn jafnt um líkamann sem stuðlar að auknum þægindum og minni hættu á þrýstingssárum. Hringurinn tekur 10 mínútur og endurtekur sig sjálfkrafa allan sólarhringinn.
✔ Dreifir þrýstingi jafnt um líkamann fyrir aukin þægindi og vellíðan
✔ Styður við líkamann allan sólarhringinn með sjálfvirku loftkerfi
✔ Sérstyrktir loftfylltir hliðarkantar veita aukinn stöðugleika og öryggi - auðveldar að setjast á rúmstokk og standa upp úr rúmi
✔ Þrjú loftfyllt höfuðhólf sem veita stöðugan stuðning við höfuð og axlir
✔ Sérstakt hælavarnarsvæði sem dregur úr þrýstingi á hæla - hentar vel einstaklingum með hælsár eða viðkvæma hæla
✔ Þægilegt og vatnshelt áklæði sem andar vel og stuðlar að betra húðumhverfi
✔ Dýnan þolir sprittun
Hagnýtar upplýsingar:
- Stærð dýnu: 88 × 200 × 20 cm - hentar fyrir 90x200 stærð á rúmi
- Þvottur á áklæði: 95°C
- Burðargeta: 220 kg