Fara á efnissvæði

Softcloud ACE Loftdýna 116 x 200 cm

Vörunúmer: 1630821

Sérpöntun

Error
Error
Error
Vinsamlegast þreyttu þrautina

Í samningi við:

SoftCloud ACE loftdýna sem hjálpar til við að fyrirbyggja og meðhöndla þrýstingssár með því að dreifa þrýstingi reglulega yfir líkamann. Loftkerfið er hannað til að líkja eftir náttúrulegum hreyfingum líkamans með því að færa þrýsting milli mismunandi svæða, jafnvel þegar notandi hreyfir sig lítið eða ekki neitt. 

Hvernig virkar loftkerfið?
Lofthólfunum er skipt í þrjár raðir. Á meðan ein röð tæmist halda hinar tvær áfram að styðja við líkamann. Þannig dreifist þrýstingurinn jafnt um líkamann sem stuðlar að auknum þægindum og minni hættu á þrýstingssárum. Hringurinn tekur 10 mínútur og endurtekur sig sjálfkrafa allan sólarhringinn.

✔ Dreifir þrýstingi jafnt um líkamann fyrir aukin þægindi og vellíðan
✔ Styður við líkamann allan sólarhringinn með sjálfvirku loftkerfi
✔ Þægilegur stuðningur fyrir höfuð, axlir og viðkvæm líkamssvæði
✔ Hjálpar til við að draga úr hættu á þrýstingssárum
✔ Aðlagar sig sjálfkrafa að notandanum
✔ Þægilegt og vatnshelt áklæði sem andar vel og stuðlar að betra húðumhverfi
✔ Dýnan þolir sprittun

Hagnýtar upplýsingar:

  • Stærð dýnu: 116x200x20 cm - hentar fyrir 120x200 stærð á rúmi
  • Þvottur á áklæði: 95°
  • Burðargeta: 350 kg

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu