Resmed AirMini ferðakæfisvefnsvél
AirMini ferðavélin er smæsta og léttasta kæfisvefnsvél heims, hönnuð fyrir líf á ferðinni. AirMini sameinar öfluga tækni og einfalda notkun í stílhreinu, fyrirferðarlitlu tæki sem auðvelt er að taka með í vinnuferðir og frí.
Vélin er notendavæn og tengist snjallforriti þar sem þú getur fylgst með meðferðinni í rauntíma. Með vélinni þarf ekki að nota rakabox, þar sem HumidX rakasíur sjá um rakameðhöndlun.
AirMini er ekki með innbyggða rafhlöðu og þarf því að tengja hana við rafmagn með straumbreytinum sem fylgir með. Þar sem ekki er aðgangur að rafmagni er hægt að tengja vélina við FLEX hleðslubatterí.
Innifalið í pakkanum:
AirMini kæfisvefnsvél
AirMini burðarpoki með reimum
20W straumbreytir
Hefðbundin loftsía
Notendahandbók
Komdu við hjá okkur, skoðaðu ferðavélina og fáðu persónulega ráðgjöf.
Við mælum með að bóka tíma í stillingu áður en AirMini er keypt. Í bókaða tímann þarf að taka með sína eigin kæfisvefnsvél, þannig að hægt sé að færa stillingarnar rétt og örugglega yfir í nýju AirMini, fyrir hámarks þægindi og áhyggjulausa notkun : Bóka tíma hér