Fara á efnissvæði

Vicair Centre Relief O2

Vörunúmer: OCRTP-50X55

Veldu stærð

Centre Relief O2 sessan afléttir þunga af endaþarmi, grindarbotni og rófubeini. Hentar fyrir einstaklinga með vandamál og verki við endaþarm, grindarbotn, rófubein og djúp staðbundin þrýstingssár á þessu svæði.

Sessunni er skipt upp í 5 hólf.  Miðjuhólfið liggur undir endaþarmi, grindarbotni og rófubeini og með því að fjarlægja hyrnur úr því er hægt að aflétta öllum þrýstingi á þessi svæði. Aftari hliðarhólf liggja utan um miðjuhólfið gefa góðan hliðarstuðning og framhólfin tvö jafna stöðuna á lærunum.

Áklæði
Hægt er að velja um tvenns konar áklæði:

Comfair með öndunareiginleikum
Incotec úr vatnsheldu efni

Báðar tegundirnar eru teygjanlegar í tvær áttir og laga sig þannig vel að líkamanum og sessunni.

Þykkt: 10 cm
Meðalþyngd: 750 g
Hámarksþyngd notanda: 250 kg

Vicair sessurnar gefa góða setstöðu og eru auðveldar í notkun. Þær eru mjög góður valkostur við endurtekin þrýstingssár, til að bæta setstöðu og þegar þörf er fyrir sessu sem er viðhaldsfrí.

Helstu kostir Vicair sessunnar eru:
Yfirburða þrýstingsdreifing og góður stöðugleiki
Lausn fyrir hjólastólsnotendur sem eru í mikilli hættu á þrýstingssárum
Minnka hættu á að notandinn renni fram í stólnum
Öruggar, áreiðanlegar og springa ekki
Ekki þörf á eftirliti daglega eða vikulega
Léttar og auðveldar í flutningi
Auðvelt að hreinsa

Sérpöntun

Error
Error
Error
Vinsamlegast þreyttu þrautina

Tengdar vörur

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu