Vicair Adjuster O2 6
Veldu stærð
Adjuster O2 hefur einstaka öndun og dregur úr hita og rakamyndun. Hentar vel fyrir einstaklinga sem hafa ósamhverfa setstöðu eða þá sem ýta hjólastólnum með fótum, t.d. vegna:
Helftarlömunar
Aflimunar á fótum
Kyphosu
Ósamhverfu í mjaðmagrind
MND
MS
Spina bifida
Má þvo í þvottavél á 60°C - þornar á 5-6 klst.
Þykkt: Sessan er fáanleg í tveimur þykktum, 6 og 10 cm.
Þyngd 550-770 g (háð stærð)
Hámarksþyngd notanda: 250 kg
Sessunni er skipt upp í 5 hólf. Hólfin innihalda loftfylltar hyrnur sem veita einstaka þrýstingsdreifingu, góðan stöðugleika og lágmarka núning. Afturhólfin tvö leiðrétta ósamhverfa setstöðu, ef þörf er á má einnig aðlaga sessuna enn frekar með því að breyta magni af hyrnum í hólfunum. Miðhólfið veitir vörn gegn því að notandinn renni fram í stólnum. Framhólfin jafna stöðuna á lærunum.
Áklæði
Sessunni fylgja tvær hlífar úr efni með öndunareiginleika. Einnig er hægt að fá tvenns konar áklæði sem fer utan um alla sessuna:
Comfair áklæðið er með öndunareiginleikum
Incotec áklæðið er úr vatnsheldu efni.
Báðar tegundir áklæða eru teygjanlegar í tvær áttir og laga sig þannig vel að líkamanum og sessunni. Sessan og áklæðin eru latex frí.
Vicair hjólastólasessurnar gefa góða setstöðu og eru auðveldar í notkun. Þær eru mjög góður valkostur við endurtekin þrýstingssár, til að bæta setstöðu og þegar þörf er fyrir viðhaldsfría sessu
Helstu kostir Vicair sessunnar eru:
Yfirburða þrýstingsdreifing og góður stöðugleiki
Lausn fyrir hjólastólsnotendur sem eru í mikilli hættu á þrýstingssárum
Minnka hættu á að notandinn renni fram í stólnum
Öruggar, áreiðanlegar og springa ekki
Ekki þörf á eftirliti daglega eða vikulega
Léttar og auðveldar í flutningi
Sessu og áklæði má þvo í þvottavél á 60°C