Ökklaspelka úr plasti- Gönguspelka
Vörunúmer: 061206CUT08
Í samningi við:
Sérsmíðuð ökklaspelka úr plasti, mótuð eftir gifsmóti eða þrívíddarskönnun af fæti notandans. Spelkan styður við ökkla og fót, stýrir stöðu fótarins í göngu og dregur úr óæskilegri hreyfingu. Þykkt og útlínur plastsins eru valdar eftir því hversu mikinn stuðning þarf. Sérsmíðin tryggir nákvæma snertingu við fótinn sem dreifir þrýstingi og eykur þægindi við daglega notkun.
Sérpöntun
- Þörf fyrir stýringu og stuðning um ökkla og fót í göngu, t.d. vegna máttminnkunar, óstöðugleika eða óæskilegrar stöðu fótar.
- Aflögun sem þarf að halda í réttri stöðu.