Fara á efnissvæði

Mediroyal Proxi Plus þumalspelka Hægri

Vörunúmer: MR2338R-ST-L

Veldu stærð

Verð 6.990 kr
Error

Proxi Plus þumalspelkan er einstök samsetning einstaklingsmiðaðrar spelku úr hitaplasti og mjúku efni. Hún er úr hinu vinsæla Neptune™ efni sem andar vel og bregst vel við vatni og þornar hratt. Í spelkunni er síðan 1,6 mm "Immo Plus" hitaplast sem er lagskipt undir filmunni á yfirborðinu og formótað til þess að styðja við grunnlið (e. CMC) og hnúalið (e. MCP) þumals. Þetta hitaplast veitir einstaklega góðan stuðning og fyrirferðarlítinn og hann má aðlaga með einföldum hætti án þess að nota vatn eða hitabyssu. Til þess að snið spelkunnar verði þéttara þarf bara að herða að þumlinum eða losa um hann til þess að sniðið verði lausara/stærra. Það er jafn einfalt og það hljómar.

Það má laga til spelkuna með skærum og án þess að ganga þurfi sérstaklega frá brúnum spelkunnar eftir það. Forðist að klippa spelkuna þar sem hitaplastið hefur verið fellt inn og yfir frönsku lásunum. Öll önnur svæði má sníða til án takmarkana. 1,6 mm "Immo Plus" hitaplastið sem og styrktarfilman munu laga sig að einstaklingnum yfir tíma fyrir tilstuðlan líkamshitans.

Innfellt 1,6 mm Immo Plus hitaplast fyrir stuðning.
Auðvelt að laga sniðið.
Fyrirferðarlítill franskur rennilás semmáfesta hvar sem er á yfirborðið. Kemur í vinstri og hægri útgáfu.
Proxi Plus þumalspelkan sameinar stuðninginn af sérsmíðaðri þumalspelku og þægindin af mjúkri spelku og hönnun hennar er varin í nokkrum löndum. Immo Plus er skráð vörumerki fyrirtækisins T-Tape og Proxi er vörumerki Mediroyal Sweden AB.

Vefsvæði framleiðanda

Tengdar vörur

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu