ProCare Plantar Fasciitis næturspelka
Vörunúmer: 79-9775-ST-L
Veldu stærð
Verð
20.990 kr
Vara ekki til á lager
Plantar Fasciitis næturspelkan gerir kleift að beita stýrðri, langvarandi teygju í tilfellum iljarfellsbólgu (e. plantar fasciitis) og hásinarbólgu. Létt, sterk og sveigjanleg skel er á spelkunni og stillanleg bönd beggja vegna til að stjórna ristarbeygjunni (e. dorsiflexion). Fóðrið er þægilegt frotté-efni og bólstruð bönd eru um kálfa og ökkla. Táfleygur fylgir til að auka teygju við iljarfellsbólgu. Hentar bæði hægri og vinstri fæti.
Stýrð teygja yfir lengri tíma á iljarfellsbandinu (e. plantar fascia) og hásininni
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Stærðir S til XL. Stærð ákvarðast af skóstærð/stærð fótar, sjá stærðarviðmið á mynd.