Mediroyal CoTex Dorsum Stable bakbelti
Veldu stærð
Cotex Dorsum Stable bakbeltið veitir góðan þrýsting og stuðning fyrir virka einstaklinga. Styrkt lokun er að framan þannig að góður stillanlegur stuðningur verður við kvið að framan og mjóbak eða mjóbak og spjaldhrygg að aftan. Í senn er beltið þó fyrirferðarlítið og auðvelt er að setja það á sig með þar til gerðum handföngum. Að aftan eru síðan fjórar spangir úr ryðfríu stáli með mjóbakslagi sem má aðlaga ef vill. Beltið er 26 sm hátt að aftan og 17 sm að framan.
- Bráðir eða langvinnir verkir á lendasvæði og á lenda- og spjaldsvæði (þursabit).
- Óstöðugleiki í mjóhrygg og spjaldhrygg.
- Hrörnunarsjúkdómar.
- Beingisnun/beinþynning.
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Stærðir Small til XXX-Large. Stærð ákvarðast af mittismáli, sjá stærðarviðmið á mynd.
Athugið að þetta belti veitir mikinn þrýsting og síður handsterkir notendur gætu þurft að velja stærri stærð en viðmiðin segja til um.