Fara á efnissvæði

E-Motion M25

Vörunúmer: EMOTIONM25-22

Veldu stærð

Sérpöntun

Error
Error
Error
Vinsamlegast þreyttu þrautina

Í samningi við:

E-Motion M25 er hjálparmótor á hjólastól sem hentar á flestar gerðir hjólastóla. Hann auðveldar einstaklingum með skertan mátt í höndum og líkama að komast um.

Mótor og rafhlaða eru í báðum hjólum: Nemar á drifhringjum keyra mótorana af stað þegar stólinn er keyrður áfram. Hægt er að stilla næmni nemanna í hvoru hjóli fyrir sig sem kemur sér vel fyrir einstaklinga sem eru með minni kraft í annarri hendi. E-Motion drifhjólin eru einfaldlega sett í stað þeirra hjóla sem fyrir voru á hjólastólnum.

Hagnýtar upplýsingar:
Drifhjólin koma í þremur stærðum: 22", 24" og 25".
Hámarksþyngd notanda: 150 kg
Hámarksburðargeta: 190 kg
Hvort hjól vegur 7,8 kg og heildarþyngd er því 15,6 kg
Drifhringir úr burstuðu ryðfríu stáli

E-motion eykur heildarbreidd hjólastóls um 2-4 cm.

Fjarstýringin:
- Notuð til að slökkva og kveikja á drifhjólunum.
- Handhæg ergonomísk hönnun.
- Auðvelt fyrir einstaklinga með skertan kraft í höndum að nota takkana.
- Skýr fyrirmæli á tökkum og auðlesanlegur LED skjár.
- Sýnir hleðslu rafhlöðu í drifhjólum.
- Hægt að velja um tvö einstaklingssniðin prógrömm fyrir notkun innandyra og utandyra.
- Er með kennsluham fyrir byrjendur.
- Með fjarstýringunni er hægt að virkja svokallaða Rollback delay virkni í drifhjólunum, sem hindrar í 5 sekúndur að stóllinn renni til baka þegar stoppað er í brekku. Það gefur notanda tíma til að staðsetja hendur betur fyrir næsta handtak og kemur í veg fyrir að stóllinn renni til baka á meðan notandi færir til hendur.

Rafhlöðuhleðslan:
- Tengist með segli í hleðsluinnstungu á E-motion drifhjólunum.
- Hleður bæði hjól samtímis.
- Sjálfvirk aðlögun fyrir 100-240 V
- Hleðslustaða sýnileg á LED ljósum á E-motion drifhjólunum.
- Hleðslutími um 6 klukkustundir

E-motion M25 drifhjólin geta tengst við nánast alla iOs eða Android snjallsíma.

Frítt app sem býður upp á ýmsa möguleika:
- Val um fjóra viðbótarkeyrslumöguleika (standard, sensitive, soft og active).
- Stöðu á rafhlöðu, hraða og hversu marga kílómetra er búið að ferðast.
- Sjálfvirk afhleðsla á rafhlöðu fyrir flug eða geymslu.
- Leit að þjónustuaðila og möguleika á sambandi við Alber þjónustuaðila.
- Nákvæm villuskilaboð með tillögum og leiðum til lagfæringar.
- Jafnframt geta notendur keypt sér enn fleiri aðgerðir í appinu.

Tengdar vörur

Smoov One Svartur Stóll Aflbúnaður og handhjól Smoove One hjálparmótor
Sérpöntun
Skoða vöru
1739893183 Mpic016440 Dk Emotion Duodrive Cv02 Main Aflbúnaður og handhjól Duo Drive hjálparmótor
Sérpöntun
Skoða vöru
2Ce42a3a 4806 49Ea Ae8a 5B1efdfff7ba Aflbúnaður og handhjól Batec hybrid 2/quad hybrid
Sérpöntun
Skoða vöru
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu