Firefly Splashy BIG
Vörunúmer: 189-B05-H10-F
Sérpöntun
Firefly Splashy Big er auðflytjanlegt bað- og sturtusæti fyrir börn og unglinga á aldrinum 7-14 ára. Sætið er með sogskálum og það er því auðvelt að festa það í baðkar eða sturtu. Það býður upp á 26 mismunandi bakhallastillingar, frá 106° til 140°. Sætinu fylgja fjórir stuðningar sem hægt er að nota jafnt sem höfuð-/hliðarstuðninga og klofkíl og aðlaga eftir því sem barnið stækkar. Hægt er að taka sætið í sundur til að auðvelda þrif. Hægt er að velja um 3 eða 5 punkta bólstrað belti.
Stærð sætis:
Setbreidd: 45 cm
Setdýpt: 40 cm
Bakhæð: 72 cm
Heildarbreidd undirstöðu: 42 cm
Burðargeta: 55 kg
Litur: Blár með grænum eða rauðum beltum