Fara á efnissvæði
Elvar - viðgerð

Viðgerðarþjónusta hjálpartækja

Stoð ehf. er með samning við SÍ um viðgerðarþjónustu á þeim hjálpartækjum sem fyrirtækið selur.

Hjálpartækjaverkstæðið er opið alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00 og er staðsett á Draghálsi 14-16, 110 Reykjavík.

Vinsamlegast bókið tíma á netinu.

Einnig er hægt að bóka með því að senda tölvupóst á vidgerdir@stod.is eða með því að hringja í síma 565-2885

Gott er að með tækjum sem koma inn í viðgerð fylgi bilanalýsing á útfylltu formi sem nálgast má hér hér.

Viðgerðum er sinnt eins fljótt og auðið er. Smærri viðgerðir s.s. sprungið dekk á hjólastól, eru gerðar meðan notandi bíður, ef nokkur kostur er.

Hægt er að fá lánaða göngugrind eða handknúinn staðlaðan hjólastól á meðan viðgerð er sinnt á þessum tækjum ef þörf á.

Ef um er að ræða veggföst hjálpartæki eða hjálpartæki sem ekki er hentugt að flytja af heimili, s.s. sjúkrarúm, er boðið uppá viðgerð í heimahúsi.

Varahlutir eru afgreiddir til þeirra aðila sem það vilja og geta skipt um sjálfir. Boðið er upp á reglulega viðhaldsskoðun á rafknúnum hjólastólum, a.m.k. einu sinni á ári.

Tæknimenn á verkstæði eru Elvar Austan Gunnarsson og Styrmir Magnússon.

 

Bóka tíma í viðgerð
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu