
Air Mini ferðakæfisvefnsvél er góður ferðafélagi
Air Mini ferðakæfisvefnsvélin er einföld í notkun og er minnsta og hljóðlátasta vélin á markaðnum í dag. Hún hentar þeim sem nota hefðbunda kæfisvefnsvél en vilja eiga léttari útgáfu sem auðvelt er að ferðast með.
Stoð selur Air Mini ferðakæfisvefnsvélar frá ResMed og margvíslega aukahluti fyrir slíkar vélar. Boðið er upp á stillingu á nýrri Air Mini vél eða endurstillingu á eldri vél sömu gerðar.
Um AirMini ferðavélina
AirMini veitir hágæða meðferð og er kjörin sem auka vél fyrir þá sem ferðast reglulega. AirMini byggir á nýrri tækni við rakagjöf þar sem rakasía er notuð í stað rakabox og vatns. Vélin er ekki nema 300g að þyngd og 13,6 cm á lengd sem gerir hana þá minnstu og hljóðlátustu á markaðnum í dag.
Athugið að kaupa þarf nauðsynlega aukahluti á borð við barka, grímu, raka- og loftsíur með vélinni. Sjá úrvalið hér.
Tveggja ára ábyrgð er á AirMini ferðavélinni. Ekki er hægt að skila ferðavélinni og aukahlutum eftir að umbúðir hafa verið opnaðar
Gott að hafa í huga þegar mætt er í stillingu
Mikilvægt er að mæta með kæfisvefnsvélina frá Landspítalanum, sé hún til staðar, í stillingartímann þar sem stillingar á ferðavélinni eru gerðar út frá henni.
Athugið að ekki þarf að vera búið að festa kaup á AirMini vélinni eða láta taka hana frá, áður en bókaður er tími í stillingu. Í tímanum er veitt ráðgjöf um vélina og fylgihluti og kaupin fara fram í lok tímans.
Við mælum með því að vera búin að hlaða niður smáforritinu AirMini by ResMed áður en mætt er í tímann. Forritið er einfalt í notkun og sérhannað til að fylgjast með framvindu meðferðar, veita yfirsýn og breyta stillingum. Hægt er að nálgast upplýsingar mánuð aftur í tímann.
Kaup á vél án formlegrar greiningar á kæfisvefni
Við viljum benda einstaklingum sem eru bíða eftir meðferð við kæfisvefni og vilja kaupa ferðavél, að Stoð er söluaðili og hefur ekki heimild til að hefja meðferð fyrir viðkomandi.
Ef einstaklingur hefur ekki fengið formlega greiningu á kæfisvefn og fengið stillingar eftir svefnrannsókn þá eru kaup á vélinni gerð með samþykki kaupanda og á hans ábyrgð. Ef einstaklingur óskar eftir því samt sem áður að kaupa ferðavél í gegnum Stoð þá er eingöngu hægt að stilla hana á grunnstillingu og meðferðin því ekki sett upp fyrir einstaklinginn út frá niðurstöðu greiningar.
Þegar einstaklingur hefur fengið kæfisvefnsvél frá Landspítalanum bjóðum við upp á endurkomu til þess að stilla ferðavélina eftir henni.