Yfir 80 ára reynsla af mæli- og greiningartækni
Metrohm er alþjóðlegur framleiðandi mæli- og greiningarbúnaðar, sem var stofnaður í Sviss árið 1943. Frá stofnun hefur fyrirtækið lagt áherslu á nákvæmni, áreiðanleika og svissnesk gæði.
Metrohm býður upp á fjölbreyttar lausnir fyrir rannsóknastofur og fyrirtæki í iðnaði, meðal annars á sviði efnagreininga, gæðaeftirlits, sjálfvirkni og ferlagreiningar.
Fjölbreyttar lausnir fyrir rannsóknastofur og iðnað
Í vöruúrvali Metrohm má meðal annars finna:
- Títratora og sjálfvirkar títrunarlausnir, þar á meðal OMNIS-línuna.
- Karl Fischer títrun fyrir nákvæmar rakamælingar.
- Jónaskiljun (Ion Chromatography, IC) fyrir aðgreiningu og magngreiningu jóna, meðal annars fyrir vatns-, umhverfis-, matvæla- og lyfjagreiningar.
- pH-, leiðni- og súrefnismæla, bæði fyrir rannsóknastofur og mælingar á vettvangi.
- NIR- og Raman-litrófsgreiningu fyrir meðal annars hráefnagreiningu og gæðaeftirlit.
- Rafefnafræðibúnað, þar á meðal lausnir fyrir voltammetry, polarography og aðrar rafefnafræðilegar mælingar.
- Sjálfvirkar og online/atline ferlagreiningarlausnir fyrir iðnað og framleiðslu.
Með nýju umboði Metrohm eykur STOÐ enn frekar úrval sérhæfðra lausna fyrir íslenskar rannsóknastofur og fyrirtæki í iðnaði, með áherslu á faglega ráðgjöf og þjónustu.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir
Hólmfríður Hartmannsdóttir
Viðskiptastjóri hjá STOÐ
holmfridur@stod.is
Nánari upplýsingar um vörur og lausnir Metrohm má finna á metrohm.com