Fara á efnissvæði
Tímabókanir

STOÐ og systurfélög styðja uppbyggingu í Reykjadal

Starfsfólk STOÐAR og systurfélaga safnaði tæplega 1,3 milljónum króna í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Reykjadal. Félögin lögðu að auki fram eina milljón króna til uppbyggingar nýs matsalar.
Image 2026 11 06T141011.027 (1)

Í sumar tók starfsfólk STOÐAR þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka ásamt starfsfólki móður- og systurfélaga til stuðnings Gló Reykjadal.

Starfsfólk safnaði tæplega 1,3 milljónum króna í áheit með stuðningi fjölskyldna og vina. Félögin hafa nú lagt eina milljón króna til viðbótar til uppbyggingar nýs matsalar í Reykjadal.

Jón Björnsson, forstjóri Veritas, móðurfélags STOÐAR, afhenti forsvarsmönnum Reykjadals styrkinn fyrir hönd félaganna þann 30. október síðastliðinn.

Frá árinu 1963 hefur Reykjadalur verið mikilvægur vettvangur fyrir börn og ungmenni með fötlun þar sem þátttaka, vinátta og samvera eru í forgrunni. Nýr matsalur mun skapa aðgengilegra og hlýlegra rými þar sem gestir geta komið saman og notið samveru.

Við hjá STOÐ erum stolt og þakklát fyrir að geta lagt okkar af mörkum til þessarar mikilvægu uppbyggingar.  

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu