Fara á efnissvæði

STOÐ hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA 2026

Á dögunum hlaut STOÐ viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi fyrirtækisins.
Jafnvægisvog Hópmynd (1)

Hjá STOÐ leggjum við áherslu á að skapa vinnustað þar sem fjölbreytileiki, virðing og jöfn tækifæri eru í fyrirrúmi. Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeirri vegferð og hvatning til að halda áfram að efla jafnrétti í okkar starfi.

Við þökkum starfsfólki okkar fyrir mikilvægt framlag og óskum systurfélögum okkar, Vistor, Artasan og Distica, innilega til hamingju með viðurkenninguna.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu