STOÐ er Fyrirmyndarfyrirtæki 2026
Við hjá STOÐ erum stolt af því að vera á lista VR yfir Fyrirmyndarfyrirtæki 2026 í flokki meðalstórra fyrirtækja.
Viðurkenningin er hluti af könnun VR um Fyrirtæki ársins 2026, einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins. Þar gefst starfsfólki kostur á að leggja mat á starfsumhverfi sitt, meðal annars út frá þáttum eins og starfsanda, stjórnun, jafnrétti, sveigjanleika, launakjörum og vinnuumhverfi.
Aðeins 15 fyrirtæki sem skora hæst í hverjum stærðarflokki hljóta viðurkenningu og teljast þar með meðal þeirra vinnustaða sem skara fram úr á íslenskum vinnumarkaði.
Viðurkenningin endurspeglar þann styrk og samheldni sem býr í teyminu okkar. Hjá STOÐ leggjum við mikla áherslu á að skapa vinnustað þar sem starfsfólk fær að vaxa, hafa áhrif og njóta sín í daglegum störfum.
Fyrir okkur skiptir fólkið mestu máli. Það er fólkið okkar sem mótar menninguna, þjónustuna og upplifunina sem við viljum standa fyrir á hverjum degi.
Við erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu og höldum áfram að byggja upp vinnustað sem við getum öll verið stolt af saman.