Starfsfólk STOÐAR hleypur fyrir Reykjadal
Starfsfólk STOÐAR tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina og safnar áheitum fyrir Reykjadal ásamt öðrum Veritas hlaupurum.
Í ár er safnað fyrir nýjum matsal og eldhúsi sem munu bæta aðstöðuna í Reykjadal og skapa aðgengilegt og hlýlegt rými fyrir börn og ungmenni.
Markmiðið í Reykjadal er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundatækifæri þar sem börn og ungmenni fá að njóta sín á eigin forsendum. Vinátta og gleði eru mikilvægur hluti af starfseminni og áhersla er lögð á að öll geti eignast vini og verið fremst á meðal jafningja.
Frá árinu 1963 hefur Gló stuðningsfélag rekið sumarbúðir í Reykjadal í Mosfellsdal. Þar er meðal annars boðið upp á sumar- og helgardvalir, Ævintýrabúðir og fjölbreytta samveru og jafningjastuðning. Um 400 börn og ungmenni nýta sér úrræði Reykjadals á hverju ári.
Matsalurinn hefur lengi verið hjarta staðarins, uppspretta hláturs, vináttu og ótal góðra stunda. Aðstaðan í gamla skálanum mætir hins vegar ekki lengur þörfum gestanna né kröfum um aðgengi. Söfnunin styður því við fyrsta áfanga nýrrar viðbyggingar og byggingu nýs matsalar sem verður aðgengilegur, hlýr og hannaður fyrir öll.
Viltu styðja við Reykjadal og hlauparana okkar?
Heita á Veritas hlaupara
Við hlökkum til hlaupsins og þökkum öllum sem vilja leggja þessu mikilvæga málefni lið.