Fara á efnissvæði

Öruggari tilfærsla sjúklinga með loftknúnum lausnum frá HoverTech

Við fengum Caroline Benet frá HoverTech í heimsókn þar sem hún kynnti loftknúnar lausnir sem auðvelda tilfærslu, snúning og staðsetningu sjúklinga.
Image 2026 08 04T092038.279

Öruggari tilfærsla sjúklinga með loftknúnum lausnum frá HoverTech

Örugg tilfærsla sjúklinga er mikilvægur þáttur í daglegu starfi heilbrigðisstarfsfólks. Rétt hjálpartæki geta dregið úr líkamlegu álagi á starfsfólk, aukið öryggi við meðferð og bætt upplifun sjúklinga. 


HoverTech framleiðir loftknúnar lausnir sem auðvelda að færa, snúa og staðsetja sjúklinga á öruggan og skilvirkan hátt. Lausnirnar eru hannaðar til að styðja við bæði starfsfólk og sjúklinga, sérstaklega þegar tilfærslur eru krefjandi eða valda miklu líkamlegu álagi. 


Nýlega heimsótti Caroline Benet frá HoverTech okkur hjá STOÐ og hélt fræðslu um lausnirnar og notkun þeirra í klínísku umhverfi. 


Í kjölfarið heimsóttum við Landspítalann þar sem lausnirnar voru kynntar í raunverulegum aðstæðum. Kynningin sýndi fram á hvernig slíkar lausnir geta stuðlað að öruggari vinnubrögðum, betri vinnuaðstæðum og auknum þægindum sjúklinga. 

📩 Nánari upplýsingar og fyrirspurnir: 

Nanna Margrét Guðmundsdóttir, viðskiptastjóri hjá STOР
nanna@stod.is

 

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu