Fara á efnissvæði

Nýtt æðaþræðingartæki tekið í notkun á Landspítala

Föstudaginn 30. október fór fram formleg opnun nýrrar æðaþræðingarstofu á Landspítala. Í haust tók inngripsröntgen- og æðaþræðingadeild spítalans í notkun nýtt æðaþræðingartæki frá Philips sem STOÐ seldi Landspítala.
4

Um er að ræða svokallað biplane-tæki sem tekur myndir í tveimur hornréttum plönum samtímis. Tæknin er einkum notuð við æðaþræðingar og inngrip á heila, meðal annars vegna bráðs blóðþurrðarslags eða æðagúls í heila, og markar byltingu í meðferð þessara sjúkdóma. 
Með tilkomu nýja tækisins fjölgar æðaþræðingartækjum deildarinnar úr einu í tvö og eykst afkastageta deildarinnar því til muna. 

Við hjá STOÐ erum stolt af því að hafa komið að þessu mikilvæga verkefni og óskum Landspítala til hamingju með nýju æðaþræðingarstofuna. 

Lesið nánar í frétt Landspítala 

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu