Fara á efnissvæði

Meistaranemar í sjúkraþjálfun í kennslu hjá STOÐ 2026

STOÐ tók nýverið á móti hópi meistaranema í sjúkraþjálfun sem fengu fræðslu um störf stoðtækjafræðinga og samstarf þeirra við sjúkraþjálfara.
Image00005

Meistaranemar í sjúkraþjálfun í kennslu hjá STOÐ

STOÐ tók nýverið á móti hópi meistaranema í sjúkraþjálfun sem fengu fræðslu um störf stoðtækjafræðinga og samstarf þeirra við sjúkraþjálfara.

Hjá STOÐ starfar öflugt fagteymi með mikla reynslu og sérþekkingu og leggjum við áherslu á að miðla þeirri þekkingu áfram til komandi kynslóða fagfólks.

Stoðtækjafræðingarnir Þórir Jónsson, Kjartan Gunnsteinsson, Elín Árnadóttir og Sarah Légrádi Skov Munk, ásamt Bríeti Bragadóttur og Gísla Vilhjálmi Konráðssyni sjúkraþjálfurum, sáu um fræðslu dagsins. Kennslan samanstóð af fyrirlestrum, verklegri kennslu og faglegum umræðum um stoðtæki og val á lausnum fyrir einstaklinga með ólíkar þarfir.

Nemendurnir tóku virkan þátt, spurðu fjölmargra spurninga og skiptust á skoðunum við sérfræðinga STOÐAR.

Við hjá STOÐ erum stolt af því fagfólki sem hér starfar og þykir sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla þekkingu okkar og reynslu til komandi kynslóða sjúkraþjálfara. 

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu