Kynning og kennsla í þrýstingsvörum frá Medi
STOÐ hélt nýverið vel heppnaða kynningu og kennslu í þrýstingsvörum frá Medi, þar sem fagfólki bauðst að kynna sér þrýstingssokka, notkun þeirra og rétt vöruval. Námskeiðið fór fram í húsakynnum STOÐAR að Draghálsi 14–16 og var þátttaka góð.
Gestakennari námskeiðsins var Marianna Yatsenko, sérfræðingur frá Medi, sem býr yfir áralangri reynslu sem fræðslustjóri hjá fyrirtækinu ásamt Söndru Karen Bjarnadóttur, hjúkrunarfræðingi hjá STOÐ.
Á námskeiðinu var farið yfir þrýstingsvörur Medi með sérstakri áherslu á þrýstingssokka, mælingar, stærðarval og mikilvægi þess að velja réttan þrýsting fyrir mismunandi þarfir notenda.
Dagskránni var skipt upp í tvo hluta. Fyrri hluti dagsins sneri að Circaid vafningum en eftir hádegi var boðið upp á sérhæfðari kennslu í stöðluðum þrýstingssokkum, þar sem farið var nánar í mælingar, verklag og raunhæf dæmi úr starfi fagfólks.
Góðar umræður sköpuðum og við þökkum þátttakendum kærlega fyrir komuna.
Ráðgjöf hjá STOÐ
STOÐ veitir ráðgjöf og mælingar fyrir þrýstingssokka og aðrar þrýstingsvörur.
Bókaðu tíma og fáðu aðstoð við að velja lausn sem hentar þér.
Hægt er að bóka HÉR - bokanir.stod.is