Fara á efnissvæði

Fræðsludagur og vinnustofur STOÐAR og Thermo Fisher Scientific

STOÐ hélt nýlega fræðsludag og vinnustofur í samstarfi við Thermo Fisher Scientific þar sem fjallað var um nýjungar í lífvísindum, rannsóknaraðferðum og lausnum sem nýtast í klínísku starfi, rannsóknum og greiningum.  
Image (71)

Fræðsludagurinn fór fram í Öskju við Háskóla Íslands. Að loknum hádegisverði tóku við fjölbreytt erindi frá vísindamönnum við Háskóla Íslands, Amgen deCODE Genetics og Landspítala, ásamt sérfræðingum frá Thermo Fisher Scientific. 

Á dagskránni var meðal annars fjallað um þrívíðar frumuræktanir, próteingreiningar og sameindagreiningar á krabbameinsæxlum.

Daginn eftir fóru fram vinnustofur hjá STOÐ að Draghálsi 14–16. Þar var annars vegar farið yfir qPCR og digital PCR (dPCR) og hins vegar próteingreiningar, með áherslu á bæði fræðilega nálgun og hagnýta notkun í rannsóknum.  

Viðburðirnir voru vel sóttir og sköpuðu verðmætt tækifæri fyrir fagfólk til að kynna sér nýjustu þróun á sínu sviði, miðla reynslu og efla tengsl innan rannsókna- og heilbrigðisgeirans.  

Við þökkum Thermo Fisher Scientific, fyrirlesurum og öllum þátttakendum fyrir fræðandi og gagnlega daga og hlökkum til áframhaldandi samstarfs um miðlun þekkingar og nýjunga á sviði rannsókna og greininga. 
 
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu