Fara á efnissvæði

Fræðsla og verklegar vinnustofur með Etac hjá STOÐ

STOÐ hélt fræðslu og verklegar vinnustofur með Etac þar sem lögð var áhersla á öruggar tilfærslur, hagnýtar flutningslausnir og sjálfstæða hreyfigetu.
Image (39)

Fræðsla og verklegar vinnustofur með Etac hjá STOÐ

Í lok apríl fengum við til okkar þau Lars Ohlson og Anette Repenning Raun frá Etac Immedia, sem héldu fræðslu- og vörukynningu á flutningshjálpartækjum fyrir sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og annað heilbrigðisstarfsfólk. 

Áhersla var lögð á öruggar tilfærslur, vellíðan notenda og sjálfstæða hreyfigetu. Á fræðsludeginum var meðal annars fjallað um lausnir á borð við snúningslök, stuðningspúða, flutningsbretti, snúningspalla og lausnir sem styðja notendur við að standa upp og færa sig á milli staða. 

Fyrr á árinu bauð STOÐ einnig upp á ETAC kennslu og verklegar vinnustofur fyrir fagfólk sem vinnur með hjólastóla og hjálpartæki. Þar var annars vegar farið yfir pöntunareyðublöð fyrir Cross og Prio hjólastóla og hins vegar helstu stillingar á ETAC hjólastólum í verklegri vinnustofu. 

Markmiðið var að styðja við fagfólk með hagnýtri fræðslu, persónulegri leiðsögn og ráðleggingum frá sérfræðingum okkar. 

Við þökkum Etac kærlega fyrir gott samstarf og öllum sem tóku þátt fyrir komuna. 

Immediasatinsheet4dmidi Moliftraiserpro Raise.Jpg 2

Spennandi lausn frá Etac

Molift Raiser Pro

Á fræðsludeginum var meðal annars sýnt hvernig Molift Raiser Pro styður við öruggar tilfærslur í daglegu starfi, til dæmis þegar notandi færist úr sitjandi í standandi stöðu eða á milli staða. 

Molift Raiser Pro er öruggur og þægilegur flutningspallur sem gerir notendum kleift að nota eigin vöðvakraft við flutning, til dæmis milli rúms og hjóla-, sturtu- eða salernisstóls. Notandinn tekur virkan þátt í hreyfingunni á meðan aðstoðaraðili vinnur við betri og líkamlega hagstæðari aðstæður. 

Flutningspallurinn hentar sérstaklega vel í endurhæfingu þar sem markmiðið er að endurheimta kraft, jafnvægi og sjálfstæði eftir veikindi eða slys. 

Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar. 

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu