Fara á efnissvæði

Alþjóðlegur dagur stoðtækja - fólkið á bak við lausnirnar

5. nóvember er alþjóðlegur dagur stoðtækja. Yfirskrift dagsins í ár er „PEOPLE“ (fólk) og er áherslan á fólkið sem nýtir stoðtækjaþjónustu og fagfólkið sem veitir hana.
Dagur Stoðtækjafræðinga 5

Af því tilefni beinum við kastljósinu að stoðtækjateyminu okkar hjá STOÐ. Starf þeirra sameinar fagþekkingu, tækni, hönnun og handverk með það að markmiði að finna lausnir sem stuðla að auknu sjálfstæði og betri lífsgæðum fyrir notendur.  

Við tókum fjóra úr teyminu tali og spurðum hvað þeim þætti mest gefandi við starfið og hvað þeir vildu að fleiri vissu um stoðtækjaþjónustu. 

Þórir Jónsson 
Hvað kemur þér enn á óvart við áhrif stoðtækja á líf fólks? 
„Það kemur manni oft skemmtilega á óvart hvað stoðtækið hjálpar mikið og hefur stór áhrif á getu fólks til að taka þátt í allskonar athöfnum daglegs lífs.“ 
Þórir hefur jafnframt gaman af því að fylgjast með og taka þátt í tækniframförum sem skapa nýja möguleika í stoðtækjaþjónustu.

Gísli Vilhjálmur Konráðsson 
Hvað myndir þú vilja að fleiri vissu um stoðtæki? 
„Að þau taka ekkert ef þau gera gagn, heldur gefa.“ 
Villi leggur jafnframt áherslu á að stoðtæki þurfi ekki aðeins að nýtast vel heldur einnig að uppfylla praktískar og fagurfræðilegar væntingar notandans. 

Borgþór Sveinsson 
Ef þú gætir sagt eitt við einstakling sem er að fá sitt fyrst stoðtæki, hvað væri það? 
„Ef þetta virkar ekki svona, þá lögum við það.“ 
Borgþór bendir einnig á að stoðtæki séu ekki eingöngu tilbúnar staðlaðar vörur heldur sé oft hægt að sérsmíða eða aðlaga búnað að þörfum hvers og eins. 

Nada Maljkovic  
Hvað finnst þér gefandi við starfið þitt? 
„Við erum að veita fólki aukin lífsgæði sem getur haft mikil áhrif á líf þess.“ 
Nada lýsir starfinu sem skapandi og skemmtilegu og leggur áherslu á mikilvægi þess að finna réttu stoðtækin og veita góða þjónustu. 


Svörin endurspegla vel yfirskrift dagsins í ár – á bak við hverja lausn er fólk, fagþekking og samvinna. 
Við erum stolt af fagfólkinu okkar sem vinnur á hverjum degi að því að finna lausnir sem bæta lífsgæði fólks.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu