Active Hands griphanski - vinstri
Veldu stærð
Griphanski sem kemur í 4 stærðum. Seldur í stykkjatali og mismunandi hanski fyrir hægri og vinstri. Hanskinn ætti að að hjálpa einstaklingum sem vega allt að 100 kg að sigrast á gripvandamálum við líkamsrækt og endurhæfingu.
Active Hands griphanskinn nýtist við fjölbreytt verkefni, hvort sem er heima, í ræktinni eða í daglegu lífi. Hann hjálpar til við að loka hendinni mjúklega en örugglega utan um þann hlut sem þú vilt halda á.
Griphanskinn virkar þannig að spennt er á ólinni að ofan, sem dregur höndina varlega í hnefalíka stöðu og aðlagar sig að því að halda hlut í lófanum. Einnig er hægt að stilla úlnliðsólina og hanskinn er bólstraður til að draga úr núningi og óþægindum.
Griphanskinn hentar meðal annars fyrir:
Æfingar í líkamsrækt (t.d. að halda á lóðum eða nota róðrarvél)
Heimilisverk og smíðar (t.d. að nota sög eða hamar)
Að halda á billjarð- eða snókerkjuða
Róður og kajaksiglingar
Garðyrkju
Að halda á glasi eða flösku
Að halda um stýri á reiðhjóli
Flestir fullorðnir nota Standard stærðina.
Einnig eru fáanlegar:
Small: fyrir fullorðna með sérstaklega litlar hendur og börn eldri en 5 ára.
Large: fyrir stærri hendur.
Fyrir börn yngri en 5 ára er í boði sérstök Mini útgáfa.
Griphanskinn er:
Mjúkur við húðina
Endingargóður
Þægilegur í notkun
Framleiddur úr sterkum ofnum böndum og endingargóðu neopreni (sama efni og notað er í kafarabúninga).
Gerður til að þola reglulega notkun, jafnvel við krefjandi æfingar og verkefni.
Má þvo í þvottavél.