Active Hands griphanski Mini - vinstri
Griphanski sem kemur í 4 stærðum. Seldur í stykkjatali og mismunandi hanski fyrir hægri og vinstri. Mini stærðin hentar fyrir börn upp að 5 ára aldri. Hægt að fá hanskann bláan eða bleikan (sérpöntun).
Active Hands griphanskinn nýtist við fjölbreytt verkefni, hvort sem er heima, í ræktinni eða í daglegu lífi. Hann hjálpar til við að loka hendinni mjúklega en örugglega utan um þann hlut sem þú vilt halda á.
Griphanskinn virkar þannig að spennt er á ólinni að ofan, sem dregur höndina varlega í hnefalíka stöðu og aðlagar sig að því að halda hlut í lófanum. Einnig er hægt að stilla úlnliðsólina og hanskinn er bólstraður til að draga úr núningi og óþægindum.
Griphanskinn hentar meðal annars fyrir:
Að halda á glasi eða flösku
Að halda um leikföng
Að halda um stýri á reiðhjóli
Griphanskinn er:
Mjúkur við húðina
Endingargóður
Þægilegur í notkun
Framleiddur úr sterkum ofnum böndum og endingargóðu neopreni (sama efni og notað er í kafarabúninga).
Gerður til að þola reglulega notkun, jafnvel við krefjandi æfingar og verkefni.
Má þvo í þvottavél.