Hoggi Sharky
Sérpöntun
Hoggi Sharky er fjölhæfur sturtu- og salernisstóll fyrir börn. Stóllinn er einstaklega þægilegur í notkun og auðvelt að stilla hann, þar sem allar stillingar eru framkvæmdar án verkfæra. Hann er samanbrjótanlegur og með sæti sem hægt er að taka af. Sætishallinn á stólnum er stillanlegur að 45° sem tekur þar með álag af setbeinum ásamt því að auðvelda aðgengi fyrir aðstoðarmann við böðun. Fóthvílur eru vinkilstillanlegar. Hægt er að fá grind undir sætið á stólnum svo hægt sé að festa það í baðkar. Einnig er hægt að fá festingu til að festa sætið beint á salerni.
Stærð stóls:
Kemur í 2 stærðum
Sethæð: 47-58,5 cm
Sethalli: -10° - +45°
Bakhalli: 72° - 120°
Hæð arma: 14,5-20,5 cm
Lengd fótahvílu: 22-40 cm
Hámarkshæð salernis: 53 cm
Heildarbreidd: 56 cm
Heildarlengd: 70 cm
Burðargeta: 60 kg
Stærð 1:
Setbreidd: 24-30 cm
Setdýpt: 27-36 cm
Bakhæð: 45 cm
Stærð 2:
Setbreidd: 29-35 cm
Setdýpt: 31-40 cm
Bakhæð: 55 cm