Ottobock
Ottobock er heilbrigðistæknifyrirtæki sem er leiðandi á sviði gerviútlima og stoðtækja. Markmið fyrirtækisins er að bæta hreyfigetu. Ottobock hefur staðið fyrir byltingarkenndum nýjungum, svo sem örgjörvastýrðum hnjáliðum eins og C-Leg, sem hægt er að stjórna með appi, tölvustýrða C-Brace fótleggnum og margliðuðu „bebionic“ höndinni. Stoð hefur um árabil verið í nánu samstarfi við Ottobock sem útvegar margvíslega íhluti í gerviútlimi Stoðar.
Stoð hefur einnig selt hjólastóla frá Ottobock um árabil. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval bæði handknúinna og rafknúinna hjólastóla sem mæta ólíkum þörfum notenda. Hjólastólar Ottobock eru hannaðir með þægindi, öryggi og sveigjanleika í huga, og eru oft sérsniðnir að þörfum hvers og eins. Með áherslu á notendamiðaða hönnun og tækninýjungar hefur Ottobock markað sér sess sem traustur samstarfsaðili í heilbrigðisgeiranum um allan heim.