Nordbed Ultra 90 sjúkrarúm
Sérpöntun
NordBed Ultra 90 er vandað og notendavænt 90 cm sjúkrarúm sem má stilla í einstaklega lága stöðu, sem hentar sérstaklega vel fyrir notendur í aukinni fallhættu.
Rúmið hentar einstaklega vel bæði í heimahús og á hjúkrunarheimili þar sem það er auðvelt að laga að þörfum notanda – sérstaklega þeirra sem eru í aukinni fallhættu.
Helstu eiginleikar:
Fjórskiptur rafdrifinn rúmbotn sem auðveldar rétta líkamsstöðu og þægindi.
Hæðarstilling 25–85 cm, fer mjög lágt og hentar vel fyrir notendur með heilabilun eða fallhættu.
Lengjanlegt um allt að 20 cm,10 cm við hvorn enda fyrir meiri sveigjanleika.
Tvískipt lyfta með möguleika á öfugri Trendelenburg-stöðu, sem styður virka og þægilega setstöðu.
Samlæsing á hjólum tryggir stöðugleika og öryggi.
Hagnýtar upplýsingar:
Stærð: 90x200 cm
Lyftigeta: 230 kg
Hámarksþyngd notanda: 200 kg