NordBed Kid sjúkrarúm með niðurfellanlegum hliðargrindum, 80x160x40
Sérpöntun
NordBed Kid er notendavænt og öruggt sjúkrarúm fyrir börn frá ca. 3–12 ára (75–154 cm).
Rúmið hentar börnum með skerta hreyfigetu eða þörf fyrir aukna umönnun í rúmi.
Helstu eiginleikar:
Hæðarstillanlegt 30–80 cm – auðvelt fyrir aðkomu og þægilega umönnun.
Fjórskiptur rúmbotn fyrir rétta stöðugleika og líkamsstöðu.
Örugg lausn fyrir fjarstýringu – sérstakur vasi sem verndar litlar hendur.
Nordbed Kid kemur í stærðum:
80x140 cm - hentar börnum sem eru 75-125 cm
80x160 cm - hentar börnum sem eru 125-135 cm
80x180 cm - hentar börnum sem eru 135-155 cm
Hægt er að fá mismunandi hliðargrindur fyrir rúmið:
Opnanlegar hliðargrindur:
Hægt að opna þær að hluta til eða alveg þrátt fyrir að rúmbotn sé stilltur í halla. Öryggisslá heldur grindunum læstum þegar þeim er lokað.
Fáanlegar í 2 mismunandi hæðum:
Fyrir 140 cm rúm = 80 cm
Fyrir 160 cm rúm = 40 cm eða 80 cm
Fyrir 180 cm rúm = 40 cm eða 80 cm
Niðurfellanlegar hliðargrindur:
Einungis fyrir rúm í stærð 160 eða 180 cm lengd. Leyfir fulla og hraða aðkomu að barninu. Fáanlegar í 40 cm hæð og eru einnig fáanlegar úr plexí gleri.
Fastar hliðargrindur:
Hvorki hægt að fella niður né opna. Fáanlegar í 40 og 80 cm hæð.
Hægt er að fá bólstranir á allar hliðar rúmsins:
Bólstrunin hefur ekki áhrif á notkun hliðargrindanna og þarf því ekki að fjarlægja þær af þegar hliðargrindurnar eru notaðar.