Immedia Molift Transfer Pro flutningspallur
Sérpöntun
Molift Transfer Pro frá Etac er flutningspallur fyrir einstaklinga sem geta stigið í fæturna en skortir kraft eða jafnvægi til að standa lengi. Með setpúðunum er hægt að flytja notanda á öruggan og auðveldan hátt í sitjandi stöðu.
Transfer Pro styður endurhæfingu og viðhald líkamlegrar færni þar sem notandinn tekur virkan þátt og nýtir eigin styrk og hreyfigetu, á sama tíma og umönnunaraðili vinnur við öruggar og líkamlega hagstæðar aðstæður.
Kjörin lausn fyrir ýmis umhverfi, svo sem sjúkrahús, hjúkrunarheimili og heimahjúkrun.
Flutningspallurinn er auðveldur í notkun og fyrirferðarlítill, með mjög litlum beygjuradíus sem hentar vel í þröngu rými. Samlæsing á hjólum tryggir örugga hemlun þegar stigið er á bremsu öðru hvoru megin. Með einföldu fótstigi er jafnframt hægt að breikka bilið á milli hjóla og auðvelda þannig aðkomu að stól, klósetti eða vaski.
Klínískir kostir:
Dregur úr líkamlegu álagi og minnkar líkur á vinnuslysum hjá umönnunaraðilum.
Gerir kleift að hefja endurhæfingu fyrr.
Tryggir þægilega og örugga sitjandi flutninga sem hafa jákvæð áhrif á sjálfsmynd notandans.
Styður einstaklinginn í að nýta og viðhalda eigin líkamlegri getu.
Gerir flutning mögulegan með einum umönnunaraðila.
Stærð:
Breidd: 63,4 cm
Hæð: 117,9 cm
Lengd: 92 cm
Hæð á fótplötu: 5,6 cm
Passar fyrir breidd upp að: 76,3 cm
Beygjuradíus: 103 cm
Hámarks burðargeta: 200 kg